top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Wandering of a Bricoleur


Romain Causel, Gallerí Úthverfa, Outvert Art Space, Ísafjörður, Vestfirðir, list, menning, landsbyggðin, úr vör, vefrit
„Allt snýst um hina forvitnilegu spurningu: "Hver er eðlileg notkun?" Þér er boðið að ganga inn í heim fáránleika og raða saman hlutunum.“ Úr verki Romain Causel

Á morgun, föstudaginn 28. júlí klukkan 16:00 verður opnuð sýning á verkum Romain Causel í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið The Wandering of a Bricoleur og stendur til sunnudagsins 20. ágúst næstkomandi.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá forsvarsfólki Gallerí Úthverfu hefur listamaðurinn dvalið undanfarnar vikur í gestavinnustofum ArtsIceland á Ísafirði og verður viðstaddur opnun sýningarinnar.

Romain Causel er þverfaglegur listamaður með aðsetur í Marseille í Suður-Frakklandi. Hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2021.

Fagurfræði hans er spunaferli, lítilvirk og þróast með tímanum. Hann sækir innblástur og efni í hluti sem hefur verið fleygt, yfirgefin rými og fáránleikann í samtíma okkar. Hann skapar oft staðbundnar innsetningar sem endurspegla umhverfið. Með húmor og ómótaðri frásögn sinni tekur hann á málefnum er varða umhverfið og stjórnmálin.

Í fyrrnefndri fréttatilkynningu segir jafnframt að The Wandering of a Bricoleur snúist um persónuna ,,The Bricoleur“ sem listamaðurinn skapaði sem nokkurs konar ýkta útgáfu af sjálfum sér. Hugtakið „bricoleur“ hefur margar merkingar á frönsku, allt frá handverksmanni til reddara, og getur jafnvel þýtt bragðarefur. Í öllu falli er merkingin sú að ná árangri með útsjónarsemi, háð aðstæðum.

Á sýningunni í Úthverfu eru vídeó, skúlptúrar og hlutir sem rannsaka heim þessarar persónu án þess að neinn augljós söguþráður sé til staðar. Allt snýst um hina forvitnilegu spurningu: "Hver er eðlileg notkun?" Þér er boðið að ganga inn í heim fáránleika og raða saman hlutunum.

Við hvetjum áhugasama um að kynna sér endilega þessa áhugaverðu sýningu sem og heimasíðu listamannsins á eftirfarandi slóð: www.romaincausel.com


Comments


bottom of page