top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Úthverft á hvolfi


Kristinn E Hrafnsson, Úthverft á hvolfi, Gallerí Úthverfa, Ísafjörður, list, menning, listasýning, landsbyggðin, úr vör, vefrit
Listamaðurinn Kristinn E. Hrafnsson. Ljósmynd aðsend.

Síðastliðinn föstudag, þann 9. ágúst var opnuð sýning á verkum Kristins E. Hrafnssonar í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið ÚTHVERFT Á HVOLFI og stendur til sunnudagsins 1. september næstkomandi. Listamaðurinn var viðstaddur opnun sýningarinnar þar sem boðið var uppá léttar veitingar og spjall auk þess sem Kristinn flutti stuttan gjörning.


Í fréttatilkynningu frá forsvarsfólki Úthverfu er haft eftir listamanninum Kristni um þessa sýningu, þar sem hann segir: „Sýningarstaður sem heitir jafn inspírererandi nafni og ÚTHVERFA hlýtur að hafa áhrif á það hvernig maður vinnur og raðar hlutunum saman. Titil sýningarinnar má rekja til staðarins, en við vinnslu hennar rifjuðust upp ævagömlum verk um speglun hluta og hugmynda sem kalla má umsnúninga. Þetta eru verk um rýmið og staðinn á réttunni og röngunni, samhverfuna og speglunina og auðvitað pósitívuna og negatívuna.

Ég er í raun enn að gera þetta, þó með öðrum hætti sé og ekki endilega sem úthverfu, heldur sem sjónarhorn, en í ákveðnu samhengi má segja að það sé eitt og hið sama. Sjónarhornin ráða því hvernig við sjáum og upplifum hlutina. Heimurinn úthverfur á hvolfi er jafn raunverulegur heimur og hinn - það er bara eitt sjónarhorn af mörgum.

Kristinn E Hrafnsson, Úthverft á hvolfi, Gallerí Úthverfa, Ísafjörður, list, menning, listasýning, landsbyggðin, úr vör, vefrit
Verk eftir Kristinn úr sýningunni Úthverft á hvolfi. Ljósmynd aðsend.

Jafnframt segir í fyrrnefndri fréttatilkynningu að Kristinn E. Hrafnsson fæddist árið 1960 á Ólafsfirði. Hann stundaði myndlistarnám í Myndlistaskólanum á Akureyri, við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnámi lauk hann frá Akademie der Bildenden Künste í München í Þýskalandi árið 1990. Kristinn hefur verið virkur við sýningarhald í áratugi og er verk hans að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi, sem og í opinberum stofnunum og einkasöfnum. Í verkum Kristins má greina heimspekilegan þráð og vangaveltur um rúm og tíma, hreyfingu, afstæði og tungumál. List hans fjallar um manninn og skilning hans á umhverfi sínu og hvernig náttúran mótar sýn hans og samskipti. Samband listaverksins við vettvanginn er mikilvægur þáttur í verkum hans, en á ferli sínum hefur Kristinn gert fjölda umhverfisverka, ýmist einn eða í samvinnu með arkitektum.

 

Kristinn sýndi síðast í Úthverfu (þá Slunkaríki) árið 1996. Þess ber að geta að starfsemi Úthverfu nýtur styrkja fyrir einstök verkefni frá Myndlistarsjóði, Orkubúi Vestfjarða, Uppbyggingarsjóði Vestjfarða og Ísafjarðarbæ.


Við hvetjum áhugasama um að kynna sér endilega þessa áhugaverðu sýningu.


bottom of page