Texti: Aron Ingi Guðmundsson
Athygli er vakin á að vefritið ÚR VÖR er í samstarfi við Heimildina, þar sem Heimildin birtir efni frá ÚR VÖR á tveggja vikna fresti. Þessi grein birtist þar nýlega.
Hjónin Vinny Woods og Una Björk Sigurðardóttir fluttu frá Írlandi til Stöðvarfjarðar fyrir 10 árum síðan og settu í kjölfarið upp hljóðverið Studio Silo í Sköpunarmiðstöðinni þar í bæ. Fyrstu fimm árin eftir að þau fluttu austur fóru í undirbúning og smíði á hljóðverinu en frá opnun, eða síðastliðin fimm ár hefur starfsemin blómstrað og þykir eftirsóknarvert að taka upp plötur hjá þeim hjónum. Þau fengu sérstakan hönnuð við gerð hljóðversins á sínum tíma og í dag nota þau sjaldgæfa aðferð við upptökur.
Vinny segir að fljótlega eftir að þau opnuðu hafi heimsfaraldur skollið á og í kjölfarið hafi tekið við rólegur tími. En hann segir að upp á síðkastið hafi verið nóg að gera og að þau uni sér vel í fámenninu fyrir austan.
„Þetta byrjaði allt þannig að ég var að leita mér að stað eða staðsetningu þar sem ég gæti byggt alvöru hljóðver, en ég hafði verið að reka hljóðver í bílskúrum og í húsinu mínu heima á Írlandi. Við komumst í samband við fólk sem tengdist Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði sem buðu okkur að setja upp hljóðver þar og var fyrirkomulagið ansi aðlaðandi, þar sem við þurftum ekki að borga leigu og máttum taka allan þann tíma sem við þurftum til að setja þetta upp. Við ákváðum að taka slaginn, pökkuðum allskonar græjum í gamla Volkswagoninn okkar og keyrðum af stað.“ segir Vinny og hlær.
Að sögn Vinny var það hljómsveitin Hjálmar sem reið á vaðið við að taka upp í hljóðverinu þeirra. Hann segir að það séu fleiri íslenskir tónlistarmenn sem nýti sér aðstöðuna fyrir austan en þó sé greinilegt að orðið um hljóðverið í afskekktu firðinum á Íslandi sé að breiðast út erlendis. „Ásgeir Trausti tók upp efni hérna hjá okkur og líka Jófríður, eða JFDR eins og hún kallar sig. Það er meira um íslenska listamenn hérna hjá okkur, en það er þó að aukast að erlend bönd bóki tíma hér í hljóðverinu. Julia Jacklin kom til dæmis hingað alla leið frá Ástralíu og við erum að taka á móti tveimur aðilum frá Bandaríkjunum fljótlega, Salami Rose Joe Louis og hljómsveitinni Flanafi. Erlendir aðilar geta fengið 25% af kostnaðinum við að hljóðrita tónlist á Íslandi endurgreiddann og það munar auðvitað um það og trekkir það að. Ég held að okkur hafi tekist að byggja upp fallegt hljóðver hér, verðlagningin okkar er sanngjörn, en ef við værum nær Reykjavík þá myndu mun fleiri koma hingað til okkar. En þau sem koma, þau eru að sækjast í rólegheitin, náttúruna og að vera afskekkt í einhvern tíma, þetta er jú sennilega afskekktasta hljóðverið hér á landi. Maður finnur það líka á þeim sem eru í gestavinnustofunni hérna í Sköpunarmiðstöðinni, þau sækjast líka í þessa sömu þætti.“ segir Vinny.
Vinny er sjálfur afar hrifinn af kyrrðinni fyrir austan. Hann segist í raun aldrei hafa búið í borg, ekki heldur heima á Írlandi og bætir við að fyrir þær sakir hafi aðlögunin í Stöðvarfirði verið auðveldari. Gestavinnustofan sem Vinny minnist á er á vegum Sköpunarmiðstöðarinnar og er einnig eftirsóknarverð. Bæði Studio Silo og Sköpunarmiðstöðin hafa fengið styrki í gegnum tíðina til að starfsemin geti staðið undir kostnaði og segir Vinny það afar nauðsynlegt fyrir starfsemina, sér í lagi fyrir Sköpunarmiðstöðina, sem sé ekki rekin í hagnaðarskyni. Hann segir að fjölmargir listamenn komi ár hvert í gestavinnustofuna þar og að þau sem hafi áhuga og þekkingu á hljóðfærum geti nýtt sér aðstöðuna í hljóðverinu. „Stundum eru yfir 10 listamenn í einu sem dvelja hér í allt að mánuði í senn og þau geta fengið að nota hljóðverið, það myndast hér mjög skemmtileg samvinna. Stundum höfum við tónleika hérna hjá okkur, þetta er stórt og mikið rými, Sköpunarmiðstöðin, yfir 3000 fermetrar og hér er tónleikasalur. Það hefur reyndar farið lítið fyrir því að undanförnu, en það er þó eitthvað sem við myndum vilja gera meira af.
En það sem fólk sækist mest í hjá okkur í hljóðverinu er að taka upp beint á segulband. Þetta er aðferð sem er ekki mikið notuð í dag, þetta er gamaldags aðferð, en við bjóðum upp á þetta og fjölmargir listamenn vilja fá efni sitt svona, í stað þess að upptakan fari bara beint inn á tölvu. Svo erum við líka með aðstöðu til að setja efnið strax á plötu. Við getum búið til um 20 til 30 eintök af plötum hérna hjá okkur með tæki sem við smíðuðum sjálf og það er líka eitthvað sem fólk sækist í.
Við gerðum þetta til að mynda fyrir Julie Jacklund og vakti það mikla lukku, enda er það sérstök upplifun að fá plöturnar bara strax frá sama stað og þú tókst efnið upp. Þannig að það er þetta tvennt, segulbandið og plötugerðin sem er eitthvað sem gerir okkur nokkuð einstök, svo ekki sé minnst á náttúrufegurðina og kyrrðina hér allt í kring“ segir Vinny stoltur að lokum.
Comments